Skip to content
180⁰ Reglan cover art

Freyja Kristinsdóttir

180⁰ Reglan

A Film Interviews and TV & Film podcast

Good podcast? Give it some love!

About the show

Hlaðvarp um kvikmyndagerð . . 180⁰ Reglan er spjallþáttur í umsjón Freyju Kristinsdóttur. Í þættinum ræðir Freyja við fólk sem starfar á ólíkum vettvangi í kvikmyndageiranum á Íslandi, fær innsýn í feril viðmælenda og þeirra sýn á bransann hér á landi. Viðmælendur eru úr öllum áttum, en reglan er sú að hafa jafnt kynjahlutfall viðmælenda í þættinum.

Newest episodes

#23 Herdís Stefánsdóttir - kvikmyndatónskáld

35 min

Herdís Stefánsdóttir er kvikmyndatónskáld með annan fótinn í LA og hinn á Íslandi. Ferill hennar sem kvikmyndatónskáld er tiltölulega nýbyrjaður en er samt kominn á fullt skrið. Hún hefur samið tónlist við fjölda stuttmynda, tvær bandarískar kvikmyndir í fullri lengd, eina HBO þáttaröð og næst á dagskrá er íslenska spennuþáttaröðin Verbúðin.  Upphafsstef: Herdís Stefánsdóttir - "Grand Central" úr kvikmyndinni The Sun is also a star Lokastef: Herdís Stefánsdóttir - úr kvikmyndinni South Mountain https://www.herdisstefansdottir.com/  

#22 Atli og Elías - leikari/framleiðandi og handritshöfundur

1 hr 1 min

Atli Óskar Fjalarson og Elías Helgi Kofoed Hansen eru bestu vinir og starfa báðir í kvikmyndagerð. Þeir hófu ferilinn sem ungir leikarar í kvikmyndinni Órói en færðu sig svo yfir í aðra þætti kvikmyndagerðar, Atli sem framleiðandi og Elías sem handritshöfundur. Þeir lærðu kvikmyndagerð í LA en búa og starfa núna á Íslandi og eru einnig með hlaðvarpsþáttinn "Atli og Elías" sem fjallar um þeirra eigin upplifun af kvikmyndabransanum á Íslandi. 

#21 Hálfdán Theodórsson - aðstoðarleikstjóri

51 min

Hálfdán Theodórsson hefur unnið sem aðstoðarleikstjóri í næstum 20 ár og meðal kvikmynda sem hann hefur unnið að má nefna Vonarstræti, Hrútar, Hjartasteinn og Kona fer í stríð.  Tónlist: "Horizon" eftir Hákon Júlíusson https://www.hakonjuliusson.com/ https://soundcloud.com/hakonjuliusson

Similar podcasts

All episodes

#23 Herdís Stefánsdóttir - kvikmyndatónskáld

35 min

Herdís Stefánsdóttir er kvikmyndatónskáld með annan fótinn í LA og hinn á Íslandi. Ferill hennar sem kvikmyndatónskáld er tiltölulega nýbyrjaður en er samt kominn á fullt skrið. Hún hefur samið tónlist við fjölda stuttmynda, tvær bandarískar kvikmyndir í fullri lengd, eina HBO þáttaröð og næst á dagskrá er íslenska spennuþáttaröðin Verbúðin.  Upphafsstef: Herdís Stefánsdóttir - "Grand Central" úr kvikmyndinni The Sun is also a star Lokastef: Herdís Stefánsdóttir - úr kvikmyndinni South Mountain https://www.herdisstefansdottir.com/  

#22 Atli og Elías - leikari/framleiðandi og handritshöfundur

1 hr 1 min

Atli Óskar Fjalarson og Elías Helgi Kofoed Hansen eru bestu vinir og starfa báðir í kvikmyndagerð. Þeir hófu ferilinn sem ungir leikarar í kvikmyndinni Órói en færðu sig svo yfir í aðra þætti kvikmyndagerðar, Atli sem framleiðandi og Elías sem handritshöfundur. Þeir lærðu kvikmyndagerð í LA en búa og starfa núna á Íslandi og eru einnig með hlaðvarpsþáttinn "Atli og Elías" sem fjallar um þeirra eigin upplifun af kvikmyndabransanum á Íslandi. 

#21 Hálfdán Theodórsson - aðstoðarleikstjóri

51 min

Hálfdán Theodórsson hefur unnið sem aðstoðarleikstjóri í næstum 20 ár og meðal kvikmynda sem hann hefur unnið að má nefna Vonarstræti, Hrútar, Hjartasteinn og Kona fer í stríð.  Tónlist: "Horizon" eftir Hákon Júlíusson https://www.hakonjuliusson.com/ https://soundcloud.com/hakonjuliusson

#20 Christof Wehmeier - Kynningarstjóri KMÍ

28 min

Hvað eiga kvikmyndirnar Men in Black, Kona fer í stríð og Mamma Gógó sameiginlegt? Jú - Christof Wehmeier hefur komið að kynningu og markaðssetningu þeirra ásamt fjölda annarra kvikmynda. Christof hefur komið víða við, meðal annars unnið fyrir Stjörnubíó og Sambíóin en síðastliðin 13 ár hefur hann verið kynningarstjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Við fórum yfir allt þetta í okkar spjalli og komum auðvitað líka inn á stöðu kvikmyndahátíða á tímum veirufaraldurs. Kvikmyndamiðstöð Íslands: kvikmyndamidstod.is Tónlist: "Walk with Me" - Jana María Guðmundsdóttir Flora: https://open.spotify.com/album/2N6qNsTKiTPt7LhU5zAmpn?si=Q8pGpOq5TFGzvG2Kce8Feg

#19 Ottó Geir Borg - handritshöfundur

1 hr 8 min

"Maður er að reyna að skrifa ekki næstu Covid-19 mynd, maður heldur sig frá því...reynir frekar að einbeita sér að einhverju skemmtilegra sem kannski hressir fólk" sagði Ottó Geir Borg, aðspurður hvaða áhrif faraldurinn hafi á störf handritshöfundar. Ottó Geir hefur unnið við handritsskrif, ráðgjöf og kennslu í um 20 ár. Það tók 7 ár að koma fyrsta handritinu á hvíta tjaldið, en myndin sló í gegn og Ottó hefur ekki stoppað síðan. Tónlist: Magni Freyr Þórisson (magniice@gmail.com) https://magniice.bandcamp.com/ 

#18 Kvikmyndagerð í skugga Covid-19

48 min

Covid-19 hefur haft áhrif á alla heimsbyggðina, og síðastliðinn mánuð höfum við Íslendingar fundið fyrir því svo um munar. Kvikmyndageirinn hefur ekki farið varhluta af þeim áhrifum, og þá sérstaklega þeir sem eru sjálfstæðir verktakar. Ég vildi ræða þetta ástand nánar og sló á þráðinn til formanna WIFT og FK, en það eru þær Anna Sæunn Ólafsdóttir og Sigríður Rósa Bjarnadóttir. WIFT á Íslandi (Women in Film and Television) FK (Félag Kvikmyndagerðarmanna) Tónlist: "Entidy" eftir Keosz

#17 Birta Rán Björgvinsdóttir - tökumaður

49 min

Birta Rán Björgvinsdóttir skaut á dögunum tónlistarmyndband sem hefur fengið 2 milljónir áhorfa á einungis 3 vikum. Birta hefur skotið fjöldan allan af tónlistarmyndböndum, en auk þess hefur hún séð um kvikmyndatökuna í ýmsum stuttmyndum og auglýsingum. Svo má ekki gleyma ljósmyndunum, en Birta sérhæfir sig í afar listrænum sjálfsmyndum. www.birtaran.com instagram.com/birtarnb www.youtube.com/user/birtarnb www.andvarinn.com   Tónlist: Think about things eftir Daða Frey Pétursson, söngur - Fríða María Ásbergsdóttir

#16 Ásgrímur Sverrisson - leikstjóri

51 min

Ásgrímur Sverrisson hefur gert kvikmyndir og fjallað um kvikmyndir í hvers kyns miðlum um áratugaskeið. Ásgrímur er ritstjóri klapptre.is og hefur alla tíð haft mikinn áhuga á uppbyggingu kvikmyndabransans hér á landi og hvað megi bæta í þeim efnum. Hann er einn stofnenda Edduverðlaunanna og Bíó Paradís og svo er hann líklega einn helsti sérfræðingur okkar í sögu íslenskrar kvikmyndagerðar.  Tónlist: "A destination" eftir Arngerði Árnadóttur arngerdur.maria@gmail.com

#15 Katrín Björgvinsdóttir - leikstjóri

1 hr 8 min

Baldvin Z hoppandi upp og niður af gleði og Katrín Björgvins grátandi á gólfinu fyrir framan heilt framleiðsluteymi seríunnar "Réttur", ónýtur bílafloti á setti og leikarar hræddir um líf sitt. Allt þetta og meira til í þessu stórskemmtilega viðtali við Katrínu Björgvinsdóttur sem útskrifaðist nýlega sem leikstjóri frá Den danske filmskole. Tónlist: "Hero" eftir Hauk Karlsson haukur@haukurkarls.com

#14 Ninna Pálmadóttir - leikstjóri og handritshöfundur

1 hr 8 min

Ninna Pálmadóttir er nýflutt til Íslands eftir mastersnám í kvikmyndagerð í New York. Ninna sagði mér frá náminu, hvernig henni tókst að pitcha raddlaus, fundi með Spike Lee og hvernig áhuginn á kvikmyndagerð kviknaði á unglingsárunum norður á Akureyri.  http://www.ninnapalma.com/ Tónlist: "Soft" eftir Ingvar Örn Arngeirsson. https://soundcloud.com/ingvar_orn https://soundcloud.com/heimskautarefur

#13 Jón Kristján Kristinsson - motion designer

1 hr 7 min

Fyrsti þáttur á nýju ári var tekinn upp á því gamla, í mörg þúsund kílómetra fjarlægð frá skerinu okkar í norðri. Gestur þáttarins er Jón Kristján Kristinsson, motion designer hjá Frame by frame í Kaupmannahöfn. Æskudraumar Jóns snérust um að teikna fyrir Disney, en þó Disney-draumurinn hafi ekki ræst er hann alveg á réttri hillu sem hreyfimyndahönnuður hjá Frame by frame, enda sameinar það áhugamálin teiknilist og tölvur.  http://www.framebyframe.dk/ Jón Kristján á Instagram: https://www.instagram.com/bigjko/ "A blue day" - stuttmynd frá 2007 eftir Jón Kristján (tæp 300 þús views) Tónlist: Jana María Guðmundsdóttir Flora: https://open.spotify.com/album/2N6qNsTKiTPt7LhU5zAmpn

#12 Ragnheiður Erlingsdóttir framleiðandi & Anton Smári Gunnarsson kvikmyndatökumaður

1 hr 5 min

Ragnheiður Erlingsdóttir og Anton Smári Gunnarsson búa í London og hafa starfað þar við kvikmyndagerð í um nokkurra ára skeið. Þau búa saman en vinna ekki saman, engu að síður hafa þau stuðning að hvort öðru þar sem þau vinna í sama bransa, og elska að deila saman ástríðunni fyrir kvikmyndagerð, Ragnheiður sem framleiðandi og Anton sem kvikmyndatökumaður.  www.antonsmari.com Tónlist: Magni Freyr Þórisson (magniice@gmail.com) https://magniice.bandcamp.com/ 

#11 Elísabet Ronaldsdóttir - klippari

1 hr 21 min

Elísabet Ronalds er einn af okkar fremstu klippurum. Núorðið klippir hún aðallega myndir úti í hinum stóra heimi, en gefur sér öðru hvoru tíma til að koma heim til Íslands og klippa. Klippari hefur gríðarleg áhrif á hvernig saga er sögð í bíómynd, og því getur útkoma myndar standið og fallið með því hvernig hún er klippt. Í þessu viðtali við Elísabetu fáum við að skyggnast inn í líf og starf þessarar lífsglöðu konu, og það er augljóst að ævistarfið er hennar ástríða.  Tónlist: Magni Freyr Þórisson (magniice@gmail.com) https://magniice.bandcamp.com/ 

#10 Hrafnhildur Gunnarsdóttir - heimildamyndagerðarmaður

1 hr 0 min

Hrafnhildur Gunnarsdóttir er mörgum kunn sem heimildamyndagerðarmaður, en samhliða kvikmyndagerðinni hefur hún einnig verið formaður Félags kvikmyndagerðarmanna, setið í stjórn kvikmyndaráðs og Nordisk Panorama og verið formaður Samtakanna 78. Verk Hrafnhildar er fjölmörg, en meðal þeirra eru Corpus Camera, Stelpurnar okkar, Með hangandi hendi, Svona fólk og Vasulka áhrifin. Ég fékk að kíkja í heimsókn á skrifstofu Hrafnhildar í Gufunesi, þáði kaffibolla og við spjölluðum um heimildamyndagerð. http://krummafilms.com/ Tónlist: Tómas R. Einarsson

#09 María Lea Ævarsdóttir - Rvk Feminist Film Festival

35 min

Reykjavík Feminist Film Festival er ný kvikmyndahátíð sem mun vafalaust sóma sér vel í flóru íslenskra kvikmyndahátíða. María Lea Ævarsdóttir, kom til mín í kaffi og sagði mér frá hátíðinni sem fer fram í fyrsta sinn 16.-19.janúar 2020.  http://rvkfemfilmfest.is/ Tónlist: Jana María Guðmundsdóttir Flora: https://open.spotify.com/album/2N6qNsTKiTPt7LhU5zAmpn

#08 Elfar Aðalsteinsson - leikstjóri

41 min

Elfar Aðalseinsson leikstýrði myndinni End of Sentence sem var opnunarmynd RIFF í ár. Bakgrunnur Elfars er talsvert ólíkur því sem við erum vön að heyra af þegar kemur að kvikmyndagerðarfólki. Hann starfaði sem framkvæmdastjóri um árabil þar til hann ákvað að venda kvæði sínu í kross og snúa sér að kvikmyndagerð þegar hann var 37 ára gamall. www.berserkfilms.com Tónlist: Magni Freyr Þórisson (magniice@gmail.com) https://magniice.bandcamp.com/ 

#07 Freyja Kristinsdóttir - hver er það?

32 min

Hugleiðingar þáttastjórnanda, stödd í verkefni úti á landsbyggðinni.  Tónlist: Karl Örvarsson Amsterdam Lift-Off Film Festival - online selection 2019 https://vimeo.com/ondemand/amsterdamliftofffeatures Rjómi / Underdog https://www.rjomi.com/ https://www.facebook.com/rjomi.bullterrier/

#06 Tómas Örn Tómasson - kvikmyndatökumaður

1 hr 11 min

Tómas Örn Tómasson hefur komið víða við í kvikmyndatöku síðastliðin 20 ár. Allt frá Latabæ yfir í Arctic með Mads Mikkelsen.... við fórum yfir allt þetta og meira til, þar til vælandi hundur missti þolinmæðina.  http://www.tomastomasson.com Tónlist: Jana María Guðmundsdóttir Flora: https://open.spotify.com/album/2N6qNsTKiTPt7LhU5zAmpn    

#05 Hrund Atladóttir - animator og tökukona

1 hr 8 min

Hrund Atladóttir, animator, myndlistakona og kvikmyndatökukona, var fyrsta íslenska konan til að skjóta bíómynd í fullri lengd. Við spjölluðum um ferilinn, animation, dróna, kvikmyndina "Taka 5", konur í camerudeild og margt fleira í þessu skemmtilega viðtali.  http://www.hrund.org/ Tónlist: "Með hjartað úti" eftir Ingvar Örn Arngeirsson. https://soundcloud.com/ingvar_orn https://soundcloud.com/heimskautarefur

#04 Börkur Gunnarsson - RIFF

37 min

Reykjavík International Film Festival 2019, hefst 26.september og lýkur 6.október. Á dagskránni í ár eru 147 kvikmyndir og fjöldinn allur af viðburðum, svo sem meistaraspjöll og fleira. Börkur Gunnarsson fjölmiðlafulltrúi RIFF settist niður með mér í spjall um hátíðina.  https://riff.is/  Tónlist: "Floating Platforms" eftir Breka Mánason http://brekimanason.com/

#03 Gunnþóra Halldórsdóttir - Kvikmyndasafn Íslands

27 min

Bílstjóri sem bjargaði tveggja tommu filmum frá haugunum...aðgengi að íslenskum myndum á internetinu...og 15 manna bíósalur... Þetta og margt fleira kom fram í spjalli mínu við Gunnþóru Halldórsdóttur, verkefnastjóra Kvikmyndasafns Íslands.   Kvikmyndasafn Íslands: https://kvikmyndasafn.is/ Tónlist: "Frosnir" eftir Elvar Smára Júlíusson es.juliusson@gmail.com

#02 Grímur Hákonarson - leikstjóri

46 min

Grímur Hákonarson frumsýndi nýverið Héraðið, sína þriðju mynd í fullri lengd. Grímur spratt fram á sjónarsviðið fyrir alvöru þegar önnur mynd hans, Hrútar, fór sigurför um heiminn. En ferillinn byrjaði að sjálfsögðu ekki þar, því enginn verður óbarinn biskup. Í viðtalinu förum við yfir ferilinn, allt frá upphafsárunum og fram til dagsins í dag.  Héraðið: https://kvikmyndir.is/mynd/?id=12204 Tónlist: "Out Of Nowhere" eftir Hauk Karlsson haukur@haukurkarls.com  

#01 Dögg Mósesdóttir - leikstjóri

47 min

Fyrsti gestur þáttarins er leikstjórinn Dögg Mósesdóttir. Það má segja að Dögg hafi marga hatta, því auk þess að vera leikstjóri, handritshöfundur, klippari og framleiðandi, þá stjórnar hún einnig kvikmyndahátíðinni Northern Wave Film Festival og var formaður WIFT á Íslandi um árabil.   WIFT á Íslandi: https://wift.is/ Freyja Filmwork: http://www.freyjafilmwork.com/ Tónlist: "My life is a movie" eftir Ingvar Örn Arngeirsson https://soundcloud.com/ingvar_orn https://soundcloud.com/heimskautarefur

–

0 ratings from members

5
4
3
2
1

Rate this podcast

Log in to rate and review the shows you listen to.

No reviews yet — be the first member to rate "180⁰ Reglan".

This podcast, its content and its artwork are not owned by, affiliated with, or endorsed by Castquire.

Keep listening

Discover more podcasts like this.

Up next

  1. Nothing queued. Use + Queue on any episode to line it up.

0:00 0:00