Skip to content
Spursmál cover art

Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

A Politics and News podcast

Good podcast? Give it some love!

About the show

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefáns­sonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.

Newest episodes

#150. - Getur stjórn Landsvirkjunar ráðið nýjan forstjóra?

1 hr 36 min

Hver er staða Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra í lok vikunnar nú þegar Landsvirkjunarmálið hefur enn undið upp á sig? Getur stjórnin sem nú er yfir fyrirtækinu ráðið nýjan forstjóra þrátt fyrir skakkaföllin að undanförnu? Þessu svara stjórnmálarýnendurnir Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu og Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins í Spursmálaþætti dagsins. Þá mæta þau á vettvang, glæpasagnahöfundarnir Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir. Þú hafa bæði gefið út bók fyrir þessi jól en þau standa einnig fyrir mikilli glæpasagnahátíð sem nú stendur yfir en hún hóf göngu sína árið 2013 og hefur vaxið mjög að burðum á þeim þrettán árum sem síðan eru liðin. Þau fara yfir fréttir vikunnar með Stefáni Einari. Í lok þáttar ræða þau Georg Lúðvíksson hjá Spesíu og Snædís Ögn Flosdóttir, forstöðumaður markaða hjá Arion banka um þóknanir í fjármálakerfinu þegar kemur að fjárfestingum einstaklinga í verðbréfasjóðum. Hafa bankarnir verið að ofrukka fólk og er Spesía að slá nýjan tón á markaðnum? Allt kemur það í ljós á vettvangi Spursmála.

#149. - Eru dagar Viðreisnar taldir?

1 hr 26 min

Hvert er pólitískt erindi Viðreisnar nú þegar þjóðin hefur hafnað Evrópuleiðangri flokksins? Þessari spurningu er hreyft í nýrri bók Björns Bjarnasonar þar sem hann gerir upp þjóðaratkvæðagreiðsluna sem efnt var til 29. ágúst síðastliðinn. Hann er gestur Spursmála að þessu sinni og ræðir stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu og öðrum samstarfsþjóðum nú þegar ljóst er að Ísland er ekki á leið þangað inn.Pólitískur lífróður Landsvirkjunar Á sama tíma og Viðreisn sleikir sárin eftir að hafa tapað þjóðaratkvæðagreiðslunni rær Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra pólitískan lífróður vegna málefna Landsvirkjunar. Hann er sakaður um að hafa afvegaleitt sjálft Alþingi með svörum sínum um málefni fyrirtækisins og eins eru uppi spurningar um pólitísk afskipti af þessu verðmætasta fyrirtæki landsins. Til þess að ræða þetta mál mæta þau á vettvang Álfheiður Ingadóttir fyrrverandi alþingismaður og ráðherra en hún sat í stjórn Landsvirkjunar með hléum í hálfan annan áratug, og Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður og fyrrverandi fjármálaráðherra. Hann þekkir málefni Landsvirkjunar vel af þeim vettvangi.

#148. - Íslamskir öfgamenn, óþarfir biðlistar og kosningar

1 hr 54 min

Hvað segir heimsókn Muhammad Taqi Usmani til Íslands um uppgang íslamskra öfgahópa hér á landi? Hver er afstaða múslima á Íslandi til þeirra viðhorfa sem hann heldur á lofti? Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum í dag. Þar mætast þau Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss og Jasmina Vajzovic, stjórnmálafræðingur. Þau hafa átt orðastað á samfélagsmiðlum síðustu vikuna í kjölfar þess að Elliði lagði orð í belg um innflytjendamál á Íslandi. Síðar í þættinum er rætt við Dagnýju Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Orkuhússins. Hún bendir á brotalamir í heilbrigðisþjónustunni hér á landi þar sem stjórnvöld draga úr fjölda aðgerða sem einkaaðilar hafa kost á að gera á sjúklingum sem eiga í alvarlegum stoðkerfisvanda á baki auk hnjá- og mjaðmaliða.  Í lok þáttarins er rætt við Gunnar Birgisson sem hefur starfað sem lögmaður í Bandaríkjunum í áratugi. Hann ræðir um stöðuna í stjórnmálunum þar í landi og leggur mat á stöðuna í kosningabaráttunni sem nær hápunkti í komandi viku. Þar verður kosið um þriðjung sæta í öldungadeild Bandaríkjaþings og öll sætin 435 sem skipuð eru í fulltrúadeild þingsins.

Similar podcasts

All episodes

#150. - Getur stjórn Landsvirkjunar ráðið nýjan forstjóra?

1 hr 36 min

Hver er staða Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra í lok vikunnar nú þegar Landsvirkjunarmálið hefur enn undið upp á sig? Getur stjórnin sem nú er yfir fyrirtækinu ráðið nýjan forstjóra þrátt fyrir skakkaföllin að undanförnu? Þessu svara stjórnmálarýnendurnir Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu og Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins í Spursmálaþætti dagsins. Þá mæta þau á vettvang, glæpasagnahöfundarnir Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir. Þú hafa bæði gefið út bók fyrir þessi jól en þau standa einnig fyrir mikilli glæpasagnahátíð sem nú stendur yfir en hún hóf göngu sína árið 2013 og hefur vaxið mjög að burðum á þeim þrettán árum sem síðan eru liðin. Þau fara yfir fréttir vikunnar með Stefáni Einari. Í lok þáttar ræða þau Georg Lúðvíksson hjá Spesíu og Snædís Ögn Flosdóttir, forstöðumaður markaða hjá Arion banka um þóknanir í fjármálakerfinu þegar kemur að fjárfestingum einstaklinga í verðbréfasjóðum. Hafa bankarnir verið að ofrukka fólk og er Spesía að slá nýjan tón á markaðnum? Allt kemur það í ljós á vettvangi Spursmála.

#149. - Eru dagar Viðreisnar taldir?

1 hr 26 min

Hvert er pólitískt erindi Viðreisnar nú þegar þjóðin hefur hafnað Evrópuleiðangri flokksins? Þessari spurningu er hreyft í nýrri bók Björns Bjarnasonar þar sem hann gerir upp þjóðaratkvæðagreiðsluna sem efnt var til 29. ágúst síðastliðinn. Hann er gestur Spursmála að þessu sinni og ræðir stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu og öðrum samstarfsþjóðum nú þegar ljóst er að Ísland er ekki á leið þangað inn.Pólitískur lífróður Landsvirkjunar Á sama tíma og Viðreisn sleikir sárin eftir að hafa tapað þjóðaratkvæðagreiðslunni rær Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra pólitískan lífróður vegna málefna Landsvirkjunar. Hann er sakaður um að hafa afvegaleitt sjálft Alþingi með svörum sínum um málefni fyrirtækisins og eins eru uppi spurningar um pólitísk afskipti af þessu verðmætasta fyrirtæki landsins. Til þess að ræða þetta mál mæta þau á vettvang Álfheiður Ingadóttir fyrrverandi alþingismaður og ráðherra en hún sat í stjórn Landsvirkjunar með hléum í hálfan annan áratug, og Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður og fyrrverandi fjármálaráðherra. Hann þekkir málefni Landsvirkjunar vel af þeim vettvangi.

#148. - Íslamskir öfgamenn, óþarfir biðlistar og kosningar

1 hr 54 min

Hvað segir heimsókn Muhammad Taqi Usmani til Íslands um uppgang íslamskra öfgahópa hér á landi? Hver er afstaða múslima á Íslandi til þeirra viðhorfa sem hann heldur á lofti? Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum í dag. Þar mætast þau Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss og Jasmina Vajzovic, stjórnmálafræðingur. Þau hafa átt orðastað á samfélagsmiðlum síðustu vikuna í kjölfar þess að Elliði lagði orð í belg um innflytjendamál á Íslandi. Síðar í þættinum er rætt við Dagnýju Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Orkuhússins. Hún bendir á brotalamir í heilbrigðisþjónustunni hér á landi þar sem stjórnvöld draga úr fjölda aðgerða sem einkaaðilar hafa kost á að gera á sjúklingum sem eiga í alvarlegum stoðkerfisvanda á baki auk hnjá- og mjaðmaliða.  Í lok þáttarins er rætt við Gunnar Birgisson sem hefur starfað sem lögmaður í Bandaríkjunum í áratugi. Hann ræðir um stöðuna í stjórnmálunum þar í landi og leggur mat á stöðuna í kosningabaráttunni sem nær hápunkti í komandi viku. Þar verður kosið um þriðjung sæta í öldungadeild Bandaríkjaþings og öll sætin 435 sem skipuð eru í fulltrúadeild þingsins.

#147. - Veifa byssum á götum Reykjavíkur

1 hr 37 min

Um tuttugu glæpahópar, sem flestir hafa rík tengsl við útlönd eru starfræktir hér. Vopnaútköllum lögreglu hefur fjölgað og tilteknir hópar innflytjenda hika ekki við að veifa skotvopnum á götum úti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjón og sviðsstjóra öryggis- og greiningarsviðs Ríkislögreglustjóra í Spursmálum í dag. Í þættinum eru birtar ljósmyndir af hópi innflytjenda sem veifa fjölda skammbyssa á götum úti á höfuðborgarsvæðinu og þær eru bornar undir Karl Steinar.Í fréttum vikunnar er rætt við Illuga Gunnarsson, fyrrverandi formann Ungra vinstri-grænna og Júlíus Viggó Ólafsson, formann Sambands ungra sjálfstæðismanna. Ræða þeir meðal annars innantökurnar í þingflokki Viðreisnar, mótmæla- og vargöldina sem geisar í París og sitthvað fleira.

#146. - Jón Gnarr leysir frá skjóðunni

2 hr 1 min

Hvað gerðist að tjaldabaki í þingflokki Viðreisnar í aðdraganda þess að Jón Gnarr sagði skilið við hópinn? Gengið verður á þingmanninn í Spursmálum.Þá er einnig rætt við tvo varaformenn, Snorra Másson frá Miðflokki og Guðmund Ara Sigurjónsson frá Samfylkingunni. Farið verður yfir stjórnmálaástandið, Bókun 35 og hallalaus fjárlög sem margir telja að verði allt annað en það.Í þættinum er sömuleiðis rætt við Björt Ólafsdóttur, fyrrverandi alþingismann og ráðherra og Hermann Nökkva Gunnarsson, aðstoðarmann Vilhjálms Árnasonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Þau rekja fréttir vikunnar þar sem húsleit hjá Ölgerðinni, leigubremsa og fleira kemur við sögu.Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði og Páll Ásgrímsson, aðallögfræðingur fjölmiðlafyrirtækisins Sýnar mæta einnig til leiks. Þeir ræða stöðuna á fjölmiðlamarkaði og fyrirhugaðar breytingar á lagaumgjörðinni um Ríkisútvarpið.

#145. - Skattaóð ríkisstjórn, ömurlegt leikrit og stýrivextir

1 hr 40 min

Farið verður yfir fréttir vikunnar með fjölmiðlakonunni Elísabetu Ingu Sigurðardóttur og Hallmundi Albertssyni lögmanni. Elísabet hefur setið undir árásum Helga Magnússonar og Ólafs Arnarson í nafnlausum skrifum þeirra á DV en pistill sem þeir birtu í liðinni viku hefur nú verið fjarlægður af vef fjölmiðilsins. Hallmundur hefur tekið að sér hagsmunavörslu fyrir forsvarsmenn hlaðvarpsins Chess after Dark en Fjölmiðlanefnd hefur sótt að þeim félögum eins og nokkrum öðrum hlaðvarpsstjórnendum sem ekki hafa viljað skrá starfsemi sína undir merkjum fjölmiðlunar. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar hefur staðið í eldlínunni síðustu daga vegna endurskoðunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði en fyrr í vikunni gekk hin svokallaða Breiðfylking frá framlengingu samninga við SA til næsta árs. Hún hefur verið mjög gagnrýnin á framgöngu forystu VR sem beið með það fram á síðustu mínútu að staðfesta framlengingu samninganna. Hefur Sólveig frá því í gærkvöldi haft uppi stór orð um aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar sem hún segir að hafi verið kominn fram þegar Breiðfylkingin undirritaði framlengingu samninganna, jafnvel þótt látið hafi verið að því liggja að pakkinn hafi komið fram í kjölfar bægslagangs VR og fagfélaganna sem voru í samfloti með félaginu. Jón Bjarnason er bóndi og oddviti Hrunamannahrepps. Hann hefur gagnrýnt harkalega fyrirætlanir stjórnvalda um stóraukna gjaldtöku á ferðaþjónustuna hér á landi og sér í lagi á Suðurlandi. Vísar hann þar bæði til hækkunar virðisaukaskatts á starfsemi baðlóna og náttúru- og innviðagjald sem sérstaklega er beint gegn Þingvöllum, Gullfossi og Geysi sem eru allt áningarstaðir á hinum svokallaða Gullna hring. Hann ræðir þessi mál ásamt Bryndísi Björnsdóttur sem er framkvæmdastjóri Laugaráss Lagoon, sem er eitt af nýjustu baðlónum landsins og staðsett við bakka Hvítár í Biskupstungum. Fyrirtæki hennar endurmetur nú hvort ráðist verði í hóteluppbyggingu á svæðinu í kjölfar þess að stjórnvöld tilkynntu um stóraukna skattheimtu á st...

#144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ

1 hr 16 min

Tveir bjóða sig fram til embættis forseta Alþýðusambands Íslands nú í mánuðinum en það fagnar 110 ára afmæli um þessar mundir. Þeir telja sig geta borið klæði á vopnin í erjum innan hreyfingarinnar. Þetta eru þeir Arnaldur Grétarsson, sem starfar á skrifstofu ASÍ og Georg Páll Skúlason, formaður stéttarfélagsins Grafíu. Í þættinum er einnig rætt við þau Brynjar Níelsson, borgarfulltrúa og fyrrverandi aðstoðarmann dómsmálaráðherra og Lísu Kristjánsdóttur, fyrrverandi aðstoðarmann forsætisráðherra. Þar verður meðal annars farið yfir atburðarás síðustu vikna þar sem Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi barna- og menntamálaráðherra hefur upplýst hvernig honum var bolað úr ráðherraembætti á sama tíma og hann jafnaði sig eftir stóra hjartaaðgerð á Landsspítalanum.

#143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í

1 hr 26 min

Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir tæplega 1.700 milljarða útgjöldum ríkissjóðs á komandi ári. Allt stefnir í hörð átök í þinginu um þessi viðamiklu og stefnumarkandi lög. Af því tilefni mæta þeir í Spursmál þingmennirnir Grímur Grímsson frá Viðreisn og Stefán Vagn Stefánsson frá Framsóknarflokki. Þeir líta þessi mál gjörólíkum augum og munu meðal annars takast á um skattahækkanir sem stefnir í á banka, ferðaþjónustu og ökumenn. Í þáttinn mætir líka sveitarstjórnarfólk af Suðurnesjum. Þar eru á ferðinni Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ og Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Þau munu ræða fréttir vikunnar, niðurstöður Pisa-könnunar og margt fleira.

#142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu

1 hr 42 min

Grípa þarf til enn frekari aðhaldsaðgerða hjá Reykjavíkurborg að sögn Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem er gestur Spursmála að þessu sinni. Hallareksturinn nam 4,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi. Í liðinni viku var greint frá umtalsverðum skipulagsbreytingum hjá borginni sem spara eiga um 900 milljónir króna á ársgrundvelli. Fer Hildur yfir þessar aðgerðir í þættinum og hvernig hún hyggist á sama tíma standa vörð um grunnrekstur borgarinnar. Í fréttum vikunnar er rætt við þá Magnús Jóhann Ragnarsson píanóleikara og Örn Arnarson, fjölmiðlarýni og hagfræðing sem starfar á Viðskiptablaðinu. Þeir ræða meðal annars miklar væringar á fjölmiðlamarkaði sem birtast í því að kvöldfréttir Sýnar heyra nú sögunni til. Í síðasta hluta þáttarins er rætt við dr. Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Hann rýnir í niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um liðna helgi og hvað úrslitin þýða fyrir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.

#141. - Uppgjörið

1 hr 1 min

Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Að baki er löng og ströng barátta þar sem andstæðar fylkingar bárust á banaspjótum. En hver er staðan að átökum loknum? Þessu hyggjast blaðamennirnir Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon svara í aukaþætti Spursmála sem fer í loftið klukkan 14:00. Þau hafa leitt fréttaumfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is síðustu mánuði þar sem ljósi hefur verið varpað á kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Í síðari hluta þáttarins mætir Óli Björn Kárason fyrrverandi ritstjóri og alþingismaður í þáttinn og ræðir nýjustu tíðindi af fjölmiðlamarkaði en í gær var tilkynnt um það að kvöldfréttatími Stöðvar 2 og síðast Sýnar hefði lagt upp laupana eftir 40 ára úthald. Hvað þýðir þetta fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu og af hverju eiga fjölmiðlar jafn erfitt uppdráttar og raun ber vitni?

#140. - Titringur á lokametrum baráttunnar

1 hr 42 min

Nú er innan við sólarhringur í að kjörstaðir opni um allt land og það styttist óðum í að úrslit fáist í einu stærsta pólitíska þrætumáli síðari ára á Íslandi. En hver verður niðurstaðan? Þeirri spurningu munu þau Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar reyna að svara í Spursmálum dagsins. Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Loga Bergmann Eiðsson og Jón Júlíus Karlsson en þeir halda úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi Seinni níu. Þar verður óhjákvæmilega rætt um fráfall Haraldar Noregskonungs en einnig önnur tíðindi af innlendum og erlendum vettvangi. Áður en rætt verður við þessi tvö tvíeyki mun Ingibjörg Davíðsdóttir, fyrrverandi sendiherra Íslands í Noregi mæta í Spursmál og ræða fráfall konungs og ríkisarfann sem nú hefur sest í hásætið í Ósló, Hákon VIII. Í lok þáttar verður rætt við Sigríði Maríu Egilsdóttur, lögmann í New York og fyrrverandi varaþingmann Viðreisnar. Hún hefur skipt um skoðun í Evrópusambandsmálum. Hún hyggst segja nei á morgun og fyrir því eru mjög forvitnilegar ástæður sem hún verður spurð út í.

#139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið

1 hr 2 min

Hilmar Veigar Pétursson stýrir Fenris Creations, áður CCP. Hann var sannfærður um að Ísland ætti að ganga í ESB. Nú hefur hann skipt um skoðun. Hann lýsir ástæðum þess í aukaþætti af Spursmálum. Hann flutti ræðu í liðinni viku á vettvangi samtakanna Áfram Ísland þar sem sjónum var beint að nýsköpunarfyrirtækjum á Íslandi og möguleikum slíkra fyrirtækja innan eða utan ESB. Ræðan hlaut mikla athygli enda hafði Hilmar Veigar talað skarpt fyrir því á árinu 2014 að halda ætti áfram aðildarviðræðum við ESB og taka upp evru í stað krónunnar. Um svipað leyti flutti Hilmar Veigar til Bretlands þar sem hið svokallaða BREXIT var nýlega um garð gengið. Hann segir að reynslan þaðan kenni að ef Ísland gangi einu sinni til liðs við ESB verði aldrei þaðan snúið að nýju. Hann mun einnig fara yfir það í viðtalinu hvernig hann telji að það að „kíkja í pakkann“ muni taka athygli frá brýnum úrlausnarefnum í íslensku samfélagi og koma í veg fyrir að þjóðin grípi ótrúleg tækifæri, ekki síst á sviði hugverkaiðnaðarins.

#138. - 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi

1 hr 48 min

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í beinni útsendingu í Spursmálum. Þar mun hann gera upp baráttuna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst, næstkomandi. Ólafur Ragnar hefur ekki farið leynt með afstöðu sína gegn Evrópusambandinu og hefur verið gagnrýninn á mögulega aðild Íslands að ESB. Segir hann slíkan könnunarleiðangur ótímabæran, enda sé Íslandi, líkt og Noregi og Sviss, betur borgið utan sambandsins og án upptöku á evru.  Í þáttinn mæta einnig hagfræðingarnir Konráð Guðjónsson og Þorsteinn Þorgeirsson til að ræða kosti og galla mögulegrar ESB-aðildar fyrir íslenskt efnahagslíf, áhrif upptöku á evru og stöðu vinnumarkaðarins í því samhengi.

#137. - Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi

1 hr 51 min

Á sama tíma og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB stendur fyrir dyrum styttist í að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði verði endurskoðaðir. Hvað ætlar verkalýðshreyfingin að gera? En atvinnurekendur? Þeim spurningum verður reynt eftir fremsta megni að svara í Spursmálum dagsins þar sem Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins mætast og fara yfir stöðuna. Ljóst er að verðbólgan mælist langt yfir því marki sem samið var um árið 2024. Í þættinum verður einnig rætt við Óskar Magnússon, lögmann, rithöfund og bónda á Sámstaðabakka í Fljótshlíð og Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra. Þau verða meðal annars spurð út í nýjustu vendingar í máli áhafnarinnar á Bandero sem gerði óskunda inni í íslenskri lögsögu fyrir skemmstu og einnig verður vöngum velt yfir því hvernig það gat komið til að böðullinn Angjelin Sterkaj sem varð manni að bana með hrottafengnum hætti í Rauðagerði árið 2021 er laus úr íslensku fangelsi og farinn til heimalands síns, Albaníu.

#136. - Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur?

1 hr 11 min

Engin þjóð hefur stofnað til umsóknar að Evrópusambandinu með þeim hætti sem íslensk stjórnvöld vilja gera nú. Hvað ætlast forystumenn ríkisstjórnarinnar fyrir í málinu?Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður hefur fjallað ítarlega um yfirvofandi umsóknarferli Íslands og ræðir það í Spursmálum dagsins. Hann var meðal annars formaður utanríkismálanefndar Alþingis þegar Íslendingar samþykktu EES-samninginn fyrir sína parta.Auk Björns mæta stjórnendur hlaðvarpsins, Komið gott, á vettvang og ræða fréttir vikunnar. Það eru þær Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir. Þar verður Evrópuumræðan sannarlega fyrirferðarmikil en sennilega munu hvalveiðar og átök við Íslandsstrendur einnig bera á góma.

#135. - Hverju búast menn við í aðildarsamningi?

1 hr 34 min

Hvers væntir Já til að sjá-hreyfingin í aðildarsamningi við Evrópusambandið þegar hann liggur fyrir? Þeirri spurningu verður beint að Jónasi Hagan, fjárfesti og einum stofnenda hreyfingarinnar í Spursmálum dagsins.Þar mætir hann Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi en hún hefur ákveðnar hugmyndir um það hvað Evrópusambandið muni leggja upp með þegar kemur að stærstu auðlind þjóðarinnar í kringum landið.Þá mun Andrés Magnússon, blaðamaður og fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu mæta til leiks og ræða fréttir vikunnar. Þar verður sjónum meðal annars beint að hlutverki fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu sem þeirrar sem fram fer þann 29. ágúst. Eiga fjölmiðlar að vera hlutlausir í umfjöllun sinni?

#134. - Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi

1 hr 25 min

Dagur B. Eggertsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri segir gríðarlegan velferðarábata felast í því að taka upp evru á Íslandi. Vitnar hann meðal annars til 12 ára gamallar skýrslu í því efni. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur segir skýrsluna úrelta. Þau takast á um efnið og hvaða tækifæri felist mögulega í því að Ísland gangi í Evrópusambandið í aukaþætti Spursmála sem sendur er út á mbl.is klukkan 10:00 í dag. Unnin að beiðni ASÍ og fleiri 2014. Skýrslan sem um ræðir og varð umtalsefni eftir að Dagur birti grein á visir.is þar sem hann vitnaði til hluta niðurstaðna hennar, var unnin af Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands árið 2014 að beiðni Alþýðusambands Íslands og nokkurra atvinnurekendasamtaka. Þar eru kostir upptöku evru tíundaðir, meðal annars í ljósi þess gríðarlega verkefnis sem stóð fyrir dyrum um að koma Íslandi út úr fjármagnshöftum. Stjórnvöld Íslands á árunum 2009-2013 höfðu heykst á því verkefni og það var ekki fyrr en með ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem lausn fékk á þeim málum með tröllauknum samningum við kröfuhafa föllnu bankanna. Ásdís Kristjánsdóttir brást við skrifum Dags og sagði stöðu efnahags- og peningamála allt aðra á Íslandi í dag en árið 2014. Grundvallarbreytingar hefðu verið gerðar á kerfinu sem hafi komið Íslandi á beinu brautina. Hún varar við inngöngu í ESB og upptöku evru og segir að með því missi Ísland mikilvægt hagstjórnartæki úr höndum.

#133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins?

1 hr 34 min

Guðmundur Fertram Sigurjónsson er meðal gesta Spursmála þennan föstudaginn og ræðir þar af hverju hann leggst gegn aðildarviðræðum við ESB en hann flutti ræðu á fundi samtakanna Áfram Ísland sem haldinn var á Selfossi á miðvikudaginn síðastliðinn.Hann býr yfir alþjóðlegri reynslu og hefur starfað við uppbyggingu fyrirtækja í Bandaríkjunum, ýmsum ríkjum Evrópu og á Nýja-Sjálandi.Hver staðan á Kerecis?Í þættinum verður hann einnig spurður út í stöðuna á Kerecis sem rekur framleiðslustarfsemi sína á Ísafirði en fyrirtækið var selt til danska lækningavöruframleiðandans Coloplast fyrir þremur árum á nærri 180 milljarða króna.Íslenskt atvinnulíf, sjávarútvegur og ESBÍ þættinum verður einnig rætt við þá Hjálmar Vilhjálmsson sem situr í stjórn Já til að sjá og Hermann Guðmundsson sem er meðal stofnfélaga Áfram Ísland. Hjálmar er framkvæmdastjóri hjá útgerðarfélaginu Brimi og verður hann meðal annars spurður út í álitamál tengd íslenskum sjávarútvegi ef Ísland gengur í ESB. Hermann er forstjóri Kemi. Hvorugur þeirra kemur þó til samtals um þessi mál sem fulltrúi fyrirtækisins sem þeir starfa hjá heldur sem einstaklingar sem vilja beita sér fyrir málefnalegri umræðu um mögulega aðild Íslands að ESB.

#132. - Á ríkið eitt að selja fólki áfengi

56 min

Er ríkisvaldið eini aðilinn sem getur með viðunandi staðið að áfengissölu hér á landi? Er það ógn við lýðheilsu og heilbrigðiskerfið ef einkaaðilum er falið það verk? Hér mætast þeir Kári Stefánsson, læknir og stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar og Arnar Sigurðsson stofnandi og eigandi áfengisverslunarinnar Santé.

#131. - Kjaftæði um matvæla- og húsnæðisverð

1 hr 31 min

Er dýrt að kaupa í matinn á Íslandi og er húsnæðismarkaðurinn ókleifari múr fyrir ungt fólk hér á landi en annars staðar. Hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson verður knúinn svara um það í Spursmálum. Hann hefur að undanförnu fjallað mikið um matvælaverð á Íslandi og hvernig markaðurinn hér á landi er í samanburði við nágrannaríkin. Í Spursmálum í dag hyggst hann einnig birta áhugaverðan samanburð á fasteignamarkaðnum á Íslandi og í Danmörku. Í fréttum vikunnar er rætt við íþróttafréttamanninn Eddu Sif Pálsdóttur sem staðið hefur í ströngu meðan á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu hefur staðið og Jón Kristin Einarsson sagnfræðing sem þessa dagana fræðir íslensku þjóðina um sögu lands og þjóðar. Það gerir hann á nýstárlegan hátt í samtölum við helstu fræðimenn landsins á þessu sviði. Þau munu þó ekki aðeins ræða HM og sagnfræði heldur einnig rýna í aðrar stórar fréttir vikunnar.

#130. - Innflutningur á glæpaklíkum og spurningin um ESB

1 hr 21 min

Margt hefur dregið til tíðinda í íslensku samfélagi í vikunni sem nú er að líða. Á vettvangi Spursmála verður drepið niður í umræðu um nokkur helstu málin, meðal annars stórt fíkniefnasmygl sem nú tengist beint veitingu ríkisborgararétts til albansks manns árið 2015. Hann er nú Íslendingur en fyrrgreint ár fóru ákveðnir fjölmiðlar og alþingismenn hamförum vegna ákvörðunar útlendingastofnunar um að vísa albanskri fjölskyldu úr landi. Þingið kiknaði í hnjánum og gestrisni þess hefur nú verið endurgoldin með fyrrnefndum hætti þar sem hópur glæpamanna vinnur að því hörðum höndum að dæla ólöglegum fíkniefnum inn í landið. Fréttir vikunnar og ESB-málin í forgrunni Þetta mál og fleiri ræða þeir Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðarbyggðar og Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður og bæjarstjóri og rithöfundur með meiru þar sem farið er yfir fréttir vikunnar. Ásmundur sat á Alþingi þegar fyrrnefnd ákvörðun var tekin. Í síðari hluta þáttarins er rætt við dr. Björn Zoëga, forstjóra King Faisal sjúkrahússins í Sádi-Arabíu en hann kom fram á upphafsfundi Áfram Ísland á mánudaginn þar sem hann færði rök fyrir því af hverju Íslendingar eigi að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi.

#129. - Ungt fólk, stórar spurningar og harðnandi barátta

1 hr 23 min

Baráttan um framtíð Íslands gagnvart Evrópusambandinu færist nú á nýtt stig og í Spursmálum vikunnar er tekist á við stóru spurningarnar sem blasa við þjóðinni fyrir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í þættinum er rætt um upplýsingagjöf stjórnvalda, stöðu krónunnar, áhrif mögulegrar aðildar á atvinnulíf og heimili landsmanna og ekki síst það hvernig ungt fólk hyggst láta til sín taka í einni stærstu pólitísku umræðu síðari ára. Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal hvalveiðar, stöðu Landhelgisgæslunnar, menntamál og þá umræðu sem nú stendur um einkunnagjöf og samræmt mat í skólakerfinu. Gestir þáttarins koma úr ólíkum áttum og draga fram mismunandi sjónarmið, en sameiginlegt er að umræðan er beinskeytt, lifandi og á köflum snörp. Í seinni hluta þáttarins mætast fulltrúar ungs fólks sitthvoru megin í ESB-deilunni og ræða hvað raunverulega er undir þegar þjóðin gengur að kjörborðinu. Gestir þáttarins eru Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akranesi, og Einar Jóhannes Guðnason, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Kópavogi, sem fara yfir fréttir vikunnar með Stefáni Einari Stefánssyni. Í síðari hluta þáttarins mæta Júlíus Viggó Ólafsson, formaður Ung gegn ESB-aðild, og Óðinn Freyr Baldursson, formaður Ungra Evrópusinna.

#128. - Þjóðaratkvæði, þjóðargrafreitur og milljarðarnir í boltanum

1 hr 35 min

Í Spursmálum vikunnar fara þingmennirnir Jón Gnarr og Snorri Másson yfir lok þingvetrarins og takast á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar greinir þá á um hvort verið sé að „kíkja í pakkann“ eða veita stjórnvöldum opið umboð til að sækja um aðild. Þá er rætt um Þingvelli, vel heppnaða tónleika Kaleo og þjóðargrafreitinn þar sem hugsanleg rannsókn á beinum Jónasar Hallgrímssonar vekur spurningar um sögu, virðingu og helgi. Í lok þáttarins ræðir Sævar Þór Sveinsson, sérfræðingur í fjármálum íþrótta og maðurinn á bak við Utanvallar.is, um gríðarlegt umfang heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, tekjur FIFA, hækkandi miðaverð og hvað HM-sæti hefði þýtt fjárhagslega fyrir íslenska knattspyrnu.

#127. - Myndi matvælaverð lækka eða hækka við ESB-aðild?

1 hr 21 min

Ýmsum fullyrðingum hefur verið haldið á lofti um að matvælaverð muni lækka ef Ísland gengur í Evrópusambandið. Því hefur jafnvel verið haldið fram að það muni lækka um allt að fjórðung. Hvað er satt og logið í því? Þeirri spurningu munu þær Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og stjórnarmaður í Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og stjórnarmaður í Evrópuhreyfingunni reyna að svara á vettvangi Spursmála í dag.Þá munu hagfræðingarnir Birta Karen Tryggvadóttir og Þórður Gunnarsson rýna í nýja fjármálaáætlun ríkisins. Birta Karen birti fyrr í vikunni grein þar sem hún gagnrýnir vinnubrögð fjármálaráðherra og Alþingis þar sem fjármálaáætlun til ársins 2031 var samþykkt án þess að tillit væri tekið til nýrrar hagspár Seðlabanka Íslands sem gerir ráð fyrir talsvert verri horfum á komandi árum og misserum en áður var gert.

#126. - Er upptaka evru ógn við efnahag Íslands?

1 hr 47 min

Jón Helgi Egilsson er doktor í peningamálahagfræði. Hann segir að upptaka evru gæti leitt hundruða milljarða króna tjón yfir íslenskt efnahagslíf ef atvinnuleysi myndi aukast vegna gjaldmiðilsins. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítarlegu viðtali við Jón Helga í Spursmálum þennan föstudaginn. Bendir hann á að sú fastgengisstefna sem óhjákvæmilega myndi fylgja upptöku evru gæti leitt til aukins atvinnuleysis í kjölfar efnahagsáfalla.Jón Helgi hefur ritað tvær greinar í Morgunblaðið að undanförnu þar sem hann ræðir gjaldmiðlamál. Þar hefur hann meðal annars gagnrýnt stjórnvöld fyrir að rangtúlka niðurstöður skýrslu sem fjármála- og efnahagsráðherra lét gera á kostum þess að taka upp evru. Bendir hann á að í skýrslunni hafi auk þess ekkert mat verið lagt á það hvaða áhrif upptöku gætu haft á atvinnustig í landinu. Þá mætir einnig í Spursmál Jón Bjarnason sem var ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála á árunum 2009-2011 meðan Ísland stóð í aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið. Hann segir að Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel og þáverandi aðalsamningamaður Íslands í umsóknarferlinu við ESB á sínum tíma fari með rangt mál þegar hann lýsi ferlinu. Vissulega hafi verið hafin aðlögun að reglum ESB í ferlinu. Skyggnst er að tjaldabaki í samtalinu við Jón og lýsir hann meðal annars ótrúlegum samskiptum sínum við Steingrím J. Sigfússon, þáverandi formann Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Jóhönnu Sigurðardóttur, formann Samfylkingarinnar. Í þættinum er einnig rætt við þá Birgi Olgeirsson, fréttamann á Sýn og Bjarna Helgason, fréttastjóra íþrótta á Morgunblaðinu og mbl.is. Þeir fara yfir Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem hófst með látum í gærkvöldi, afrekið sem Gunnlaugur Árni Sveinsson vann þegar hann vann sér inn þátttökurétt á US Open í golfi. En þeir láta ekki þar við sitja. Þeir munu skyggnast yfir fleiri fréttir sem hátt bar í vikunni sem leið.

#125. - Áslaug kveður, ESB-sumarið hefst

1 hr 58 min

Í Spursmálum vikunnar er farið yfir pólitíska jarðskjálfta síðustu daga, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur úr stjórnmálum og það sem kann að bíða hennar handan þingsalarins. Þá hefst heit umræða um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, enda virðist íslenska sumarið ekki eiga að fara í sól, sund og pylsur heldur gjaldmiðlamál, fullveldi og skýrslur. Hermann Nökkvi Gunnarsson og Hlédís Maren Guðmundsdóttir fara yfir fréttir vikunnar, þar á meðal stöðu Miðflokksins eftir kosningar, fánamál í Reykjavík, útlendingamál í Reykjanesbæ, Icelandair, Oculis og umræðuna um íslenska fánann. Þá ræðir Áslaug Arna ákvörðun sína og framtíðina, áður en Lilja Alfreðsdóttir og Dagbjört Hákonardóttir takast hressilega á um ESB, krónuna, EES-samninginn og stöðu Íslands í breyttum heimi.

Bókaspjall: Þorskastríðin með Guðna Th. Jóhannessyni

1 hr 24 min

Í þættinum ræðir Stefán Einar Stefánsson við Guðna Th. Jóhannesson, sagnfræðiprófessor og fyrrverandi forseta Íslands, um bók hans Stund milli stríða: Saga landhelgismálsins 1961 til 1971. Rætt er um Þorskastríðin, átökin við Breta, togvíraklippur, NATO-vopnið, hleranir, alþjóðalög og þá flóknu sögu sem mótaði sjálfsmynd Íslendinga sem strandþjóðar. Guðni segir frá lykilatvikum, persónum og pólitískum átökum tímabilsins og veltir fyrir sér hvernig sagan lifir áfram í samtímanum, meðal annars í umræðu um fullveldi, auðlindir og samband Íslands við Evrópu.

#124. - Guðrún vs. Sigmundur og blikur á lofti

1 hr 48 min

Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur náðu ekki saman um meirihluta í höfuðborginni, þrátt fyrir vonir margra þar um. Formenn flokkanna, þau Guðrún Hafsteinsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gera upp sveitarstjórnarkosningarnar og fara yfir yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst. Þá mætir til leiks Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka en hann ritaði grein í Morgunblaðið í morgun sem nefnist Maður mjólkar ekki dauða kú. Hann hefur verulegar áhyggjur af stöðu Icelandair sem hann segir mikilvægasta fyrirtæki landsins. Hann kom að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í Covid-faraldrinum og þekkir því vel til á vettvangi. Hvað er til ráða? Er hætt við því að Íslendingar missi úr höndunum þessa lífæð milli landsins og meginlandanna í austri og vestri? Í lok þáttarins ræðir Stefán Einar við þau Önnu Laufeyju Stefánsdóttur hjá Stafrænni velferð og Svein Tryggvason, framkvæmdastjóra Tæknivara. Þau hafa áhyggjur af stöðu samfélagsmiðla og hvernig þeir virka á unga fólkið í landinu. Hvar liggur vandinn? Eru þessir sömu miðlar nú þegar búnir að gleypa foreldra barnanna?

#123. - Er kreppuverðbólga að skella á landinu?

1 hr 33 min

Sveitarstjórnarkosningarnar, efnahagshorfur og áhrif stýrivaxta á heimili og fyrirtæki eru meðal þess sem tekið er fyrir í Spursmálum í dag.Þar fara þau Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Katrín Júlíusdóttir, ráðgjafi og fyrrverandi ráðherra, yfir helstu fréttir vikunnar og rýna í niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna.Í síðari hluta þáttarins ræða þau Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, og Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og ráðgjafi, um stöðu efnahagsmála hér á landi, stýrivaxaákvörðun Seðlabanka Íslands og horfur á næstu misserum.

Bókaspjall: Frelsið eftir Mill með Hannesi Hólmsteini

1 hr 9 min

Frelsi, nytjastefna, málfrelsi og staða hugmynda í samtímanum voru til umræðu þegar Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, ræddi við Stefán Einar Stefánsson í Bókaklúbbi Spursmála um bókina Frelsið eftir John Stuart Mill.

#122. - Mun ríkisstjórnin koma atkvæðagreiðslunni í gegn?

1 hr 27 min

Meirihlutinn á Alþingi hefur sléttar þrjár vikur til að koma ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB í gegnum þingið. Takist það ekki 29. maí eða fyrr getur ekki orðið af henni í lok ágúst. Þessa dagana er hart tekist á um málið, ekki síst á vettvangi utanríkismálanefndar þingsins. Pawel Bartoszek er formaður nefndarinnar en í henni situr einnig Diljá Mist Einarsdóttir. Þau eru gestir Spursmála að þessu sinni og ræða málið frá ýmsum hliðum. Ljóst er að stór gjá er á milli meirihluta og minnihluta í þinginu um málið. Áður en þau mæta til leiks fara þau Andrés Magnússon og Andrea Sigurðardóttir yfir stöðuna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Mun kreditkortanotkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur hafa áhrif á fylgi Samfylkingarinnar og mun Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi standa af sér árásir Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra.

#121. - Gæti eldgos í Eyjum sett jarðgangagerð í uppnám?

1 hr 14 min

Í Spursmálum dagsins verður öllum helstu spurningum svarað um það hvort mögulegt sé að bora 18 kílómetra göng milli lands og Eyja. Þá verður rætt við nýja oddvitaframbjóðendur í Garðabæ og Reykjavík. Þannig mæta þau til leiks, Kjartan Atli Kjartansson, oddviti Samfylkingarinnar í Garðabæ og Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík. Munu þau ræða fréttir vikunnar sem eru af ýmsu og ólíku tagi. Í síðari hluta þáttarins er rætt við dr. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðing og Árna Sigfússon, stjórnarformann Eyjaganga, um hugmyndina að göngum milli lands og Eyja.

#119. - Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB?

1 hr 34 min

Á Ísland, sem eitt ríkasta land í heimi, erindi inn í Evrópusambandið þar sem mörg ríki glíma við fátækt og efnahagserfiðleika? Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra hefur skoðun á því. Hann er  væntanlegur í Spursmál í dag til þess að ræða þetta áleitna mál en hann verður einnig til svars um það hvernig alþjóðamálin í víðara samhengi blasa við honum. Hann var um nokkurra ára skeið sendiherra Íslands gagnvart Bandaríkjunum í Washington D.C. og er því öllum hnútum kunnugur þegar kemur að stöðu og stefnu Bandaríkjanna, jafnt heima fyrir og um veröld víða. Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Sævar Helga Bragason, jarðfræðingur og umsjónarmaður Stjörnuvefsins með meiru, og Herbert Guðmundsson tónlistarmann. Rætt verður við þá um geimskot, fráfall Björgvins Halldórssonar og margt fleira. Í þáttinn mætir einnig Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra Morgunblaðsins en hann mun í dag sitja fyrir hönd blaðsins blaðamannafund ríkisstjórnarinnar sem bæði kynnir nýja atvinnustefnu fyrir Ísland og tímabundnar aðgerðir til að mæta efnahagslegum þrengingum sem gert hafa vart við sig á síðustu mánuðum. Hann mun fara yfir helstu atriði í tillögum ríkisstjórnarinnar.

#118. - Eldfim umræða um Hamas-liða á Íslandi

1 hr 35 min

Allt ætlaði um koll að keyra í kjölfar þess að Morgunblaðið upplýsti að menn með tengsl við Hamas-samtökin hefðu staðið að voðaverki í bílakjallara í Reykjavík. Lögreglan hefur orðið tvísaga um málið en nú virðist óhætt að upplýsa um þjóðerni mannanna sem nú sæta rannsókn vegna afar hættulegrar líkamsárásar sem átti sér stað á Höfðatorgi í Reykjavík. Þetta og fleira er til umræðu á vettvangi Spursmála. Alþingismennirnir Bergþór Ólason frá Miðflokki og Grímur Grímsson frá Viðreisn ræða málið á vettvangi Spursmála. Almenningur spyr sig út í hvort öryggi fólks sé ógnað vegna uppgangs erlendra glæpagengja hér á landi. Grímur er fyrrverandi yfirlögregluþjónn og þekkir vel til málaflokksins. Þeir ræða einnig stöðuna í efnahagslífi landsins en ný verðbólgumæling sýnir að ekki hefur tekist að ná böndum á verðhækkanir hér á landi. Mælist hún 5,4% samkvæmt Hagstofunni og fátt bendir til þess að kjarasamningar muni halda þegar þeir koma til endurskoðunar þann 1. september næstkomandi. Í síðari hluta þáttarins mæta alþingismennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson frá Sjálfstæðisflokki og Ingvar Þóroddsson frá Viðreisn. Þeir ræða um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Einnig munu þeir takast á um nýbirta fjármálaáætlun ríkisins sem gildir fyrir árin 2027 til 2031. Báðir sitja þeir í fjárlaganefnd sem nú tekur áætlunin fyrir.

#117. - Flest teikn í hagkerfinu vísa í verri átt

1 hr 36 min

Mjög gefur á bátinn í íslensku hagkerfi um þessar mundir og fátt sem gefur sérstaka ástæðu til bjartsýni. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir sýnir ekki á nein spil um hvernig bregðast skuli við.Þau Bjarnheiður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, og Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, fara yfir nýja ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentur. Minnihluti nefndarinnar vildi raunar hækka þá um 0,5 próse Einnig fara þeir Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Krogh Ólafsson og fara yfir fréttir vikunnar. Þeir stýra hlaðvarpinu Korter í kosningar og af þeirri ástæðu augljóslega mun umræðan að miklu leyti hverfast um kosningarnar sem framundan eru 16. maí næstkomandi.Í lok þáttar er rætt við Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, doktorsnema í stærðfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur smíðað tvær afar áhugaverðar heimasíður sem notast við mállíkön til þess að greina íslenskt samfélag úr tveimur áttum.Þar er annars vegar um að ræða síðuna Þingfréttir (thingfrettir.is) þar sem starfsemi Alþingis er greind með áhugaverðum hætti og nýstárlegum og hins vegar ESB vaktin (esbvaktin.is) þar sem umræðan um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst er greind og vegin og metin. Er hér um að ræða einskonar staðreyndavakt sem mun nýtast almenningi til að greina kjarna frá hysmi og sannleika frá lygi.

#116. - Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB

2 hr 8 min

Mikið uppbrot á fjölmiðlamarkaði er í farvatninu eftir að tilkynnt var um kaup Símans á Vísi og útvarpsstöðum Sýnar. Þá berast fylkingar á banaspjótum út af spurningunni um aðildarviðræður við ESB. Þessi mál verða tekin fyrir í fréttum vikunnar í Spursmálum þar sem Heiða Kristín Helgadóttir, nýráðinn ráðgjafi utanríkisráðherra, og Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans og stjórnandi hlaðvarpsins Komið gott, leiða saman hesta sína. Þá mætir Gauti Geirsson á svæðið en hann er framkvæmdastjóri laxeldisfyrirtækisins Háafells við Ísafjarðardjúp. Fyrirtæki hans beinir tæknibúnaði sem helst hefur orðið vart við í Star Wars í baráttunni við hina skæðu laxalús sem bæði herjar á eldislax og villtan. Í síðasta hluta þáttarins er rætt við Gísla Ragnar Guðmundsson sem leiðir samnorræna stofnun um gervigreind. Hann er flestum ef ekki öllum hnútum kunnugur þegar kemur að gervigreindinni en ekki er vanþörf á að skýra fyrirbærið fyrir fólki sem oft virðist ráðvillt þegar kemur að umræðu um kosti og galla þessarar mögnuðu tæknibyltingar.

#115. - Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið?

1 hr 23 min

Að 173 dögum liðnum liggur fyrir hvort Ísland hefji aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið? Hvaða sjónarmið munu liggja til grundvallar þegar þjóðin ákveður hvort leggja skuli út í þá vegferð? Það er stóra spurningin sem varpað var fram í opinberri umræðu síðastliðinn föstudag þegar forystukonur ríkisstjórnarinnar boðuðu þjóðaratkvæðagreiðslu um málið en hún mun fara fram 29. ágúst, verði þingsályktunartillaga þar um samþykkt á Alþingi. Góðir gestir Fyrst mæta þeir á vettvang, Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, og Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins. Þá leiða saman hesta sína Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar þingsins, og Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður hans.

#114. - Er kreppa skollin á? Viðtal við Bjarna Benediktsson

1 hr 42 min

Í byrjun mánaðarins tók Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, við starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann mætir í fyrsta ítarlega viðtalið í kjölfar þess á vettvangi Spursmála. Í upphafi verður hann spurður út í kynni sín af Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóra Morgunblaðsins, sem féll frá um liðna helgi. Þeir áttu lengi samfylgd, fyrst í þinginu en síðan á þjóðarsviðinu þar sem Bjarni leiddi flokkinn sem Davíð hafði stýrt á árunum 1991-2005. Viðkvæm staða efnahagsmála Þá verður talinu beint að stöðu efnahagsmála en þar hefur syrt verulega í álinn á síðustu mánuðum og vaxtasleggjan sem Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hafði lofað að beita þjóðinni til handa hefur alls ekki virkað. Hvernig standa atvinnuvegirnir og eru sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki í núverandi ástandi? Hvað finnst Bjarna Benediktssyni um atkvæðagreiðsluna um mögulega aðild að ESB? Mun stríðið í Íran leiða áföll yfir Ísland? Í fyrri hluta þáttarins  verður hins vegar rætt við þá Þórð Gunnarsson, hagfræðing og Stefán Gunnar Sveinsson, blaðamann á Morgunblaðinu en þeir hafa báðir sérþekkingu á málefnum sem tengjast hinum miklu stríðsátökum sem nú geisa í Íran. Í viðtali við þá verður reynt að varpa upp mynd af atburðum síðastliðinnar viku og hvaða áhrif þeir kunni að hafa vítt og breitt um heimsbyggðina.

113. - Verður VG reist frá dauðum? Lifir Icelandair ETS af?

1 hr 57 min

Rósa Björk Brynjólfsdóttir vill verða formaður VG en flokkurinn er í mikilli kreppu eftir að hafa dottið út af þingi og misst ríkisstyrki. Kosið verður um nýjan formann í flokknum um miðjan næsta mánuð. Icelandair býr við mjög íþyngjandi umhverfisskattheimtu og ljóst að ef hennar nyti ekki við hefði fyrirtækið skilað umtalsverðum hagnaði á síðasta ári. Rósa Björk mætir í Spursmál og ræðir fréttir vikunnar ásamt Eyþóri Arnalds, fyrrum borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þau ræða stríðið í Úkraínu, ESB-umsókn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og margt fleira af vettvangi stjórnmálanna. Flugfélag í kreppu Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair ræðir stöðu flugfélagsins, ekki síst í ljósi hinnar miklu skattheimtu sem að mati margra skekkir samkeppnisstöðu íslensks flugrekstrar mjög gagnvart evrópskum og bandarískum flugfélögum. Rangir hvatar í stærstu bótakerfum landsins Í lok þáttar mætir geðlæknirinn og viðskiptafræðingurinn Oddur Ingimarsson og ræðir tvær afar athyglisverðar greinar sem hann hefur ritað í Morgunblaðið á síðustu tveimur vikum um örorkubætur og lífeyrisgreiðslur og hvernig samspil þeirra geta latt fólk til þess að koma aftur út á vinnumarkaðinn eftir að hafa misst starfsgetu sína um stundarsakir.

#112. - Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn?

1 hr 39 min

Jafnt og þétt leggst losunarkerfið ETS með þyngri hætti á íslenskt viðskiptalíf. Innan fárra ára mun kostnaður Icelandair við kerfið margfaldast. Hvaða áhrif mun það hafa? Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum dagsins en Frosti Sigurjónsson, höfundur bókarinnar Hitamál og Ragnar S. Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða ETS-kerfið og hugmyndafræðina á bak við það í þættinum. Rýnt í fréttir vikunnar Í fréttum vikunnar er rætt við þau Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, stærsta stéttarfélags Landsins, og Frosta Logason, stjórnanda Brotkastsins. Þar ber margt á góma, málefni Andrésar Mountbatten, fyrrum prins og bróður Karls III Bretakonungs, ný ályktun ASÍ um erfiða stöðu í efnahagsmálum þjóðarinnar og framganga dr. Arnars Eggerts Thoroddsen í kennslustund í Háskóla Íslands þar sem hann spurði unga nemendur hvort þeir hygðust ekki ábyggilega „taka af lífi“ nafngreinda menn úr íslenskum fjölmiðlum.

#111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin?

2 hr 11 min

Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningamála situr fyrir svörum í Spursmálum í dag. Seðlabankanum hefur ekki tekist að hemja verðbólguna sem er 5,2%. Er hann reiðubúinn að hækka vexti? Margt bendir til þess enda hefur bankinn það verkefni samkvæmt lögum að halda verðbólgu í landinu sem næst verðbólgumarkmiði sem er 2,5%. Hversu hátt geta vextirnir farið? Seðlabankinn ákvað í síðustu viku að halda meginvöxtum bankans óbreyttum í 7,25% og í stað þess að halda áfram því vaxtalækkunarferli sem hafið var á árinu 2024 virðist margt benda til þess að bakslag sé komið í þá þróun. Getur verið að bankinn þurfi enn á ný að hækka vexti upp úr öllu valdi? Í þættinum verður Þórarinn einnig spurður út í þær fyrirætlanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur uppi um að gera grundvallarbreytingar á almannatryggingakerfinu. Þær breytingar kallar Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar, ríkisfjármálalega tímasprengju. Þau Lára G. Sigurðardóttir, doktor í lýðheilsuvísindum, og Elías Blöndal Guðjónsson eigandi Santé eru einnig gestir þáttarins og takast á um sölu og neyslu áfengis í samræmi við núgildandi áfengislög. Þá mæta í settið þeir Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, og Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, og ræða það sem bar hæst í fréttum vikunnar.

#110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn

48 min

Í morgun var tilkynnt að Ari Edwald myndi leiða Miðflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann segir með því skilið við Sjálfstæðisflokkinn sem hann hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir síðustu áratugi. Hann er gestur í aukaþætti af Spursmálum kl. 14.00 í dag. Þátturinn var sendur út í beinni útsendingu frá ritstjórn Morgunblaðsins í Hádegismóum.

#109. - Er ríkisstjórnin að missa stjórn á hagkerfinu?

1 hr 36 min

Allt virðist stefna í mjög hraða kólnun hagkerfisins á sama tíma og verðbólga eykst hratt. Hætt er við að ríkisstjórnin missi stjórn á kerfinu við slíkar aðstæður og háir vextir verði viðvarandi. Þessi staða verður til umræðu í Spursmálum í dag. Þar mæta til leiks Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi og hagfræðingur og Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi sem lengi hefur tjáð sig um stöðu efnahagsmála hér á landi. Til þess að fara yfir fréttir vikunnar ætla þær að leiða saman hesta sína borgarfulltrúarnir Magnea Gná Jóhannsdóttir og Líf Magneudóttir. Þær sækjast báðar eftir endurkjöri í komandi kosningum og í flokkum þeirra beggja stefnir einnig í formannsskipti á allra næstu vikum. Hver er líklegri til þess að verða næsti formaður Framsóknar, Lilja D. Alfreðsdóttir eða Ingibjörg Isaksen? Og hver mun taka við keflinu af Svandísi Svavarsdóttur sem æðstráðandi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs?

Bókaspjall - Æviminningar Karls Sigurbjörnssonar

58 min

Fyrir jól kom út sjálfsævisaga Karls Sigurbjörnssonar biskups, „Skrifað í sand, minningabrot“. Hann lést árið 2024 en skildi eftir sig handrit að endurminningunum. Bókin var til umfjöllunar í bókaklúbbi Spursmála í janúar. Viðmælandi er séra Hreinn Hákonarson, fyrrverandi fangaprestur, sóknarprestur og ritstjóri Kirkjublaðsins, sem er sjálfstæður fjölmiðill um málefni kirkju ogtrúar.

#108. - Eru kjarasamningar í uppnámi?

1 hr 34 min

Verðbólgan er á mikilli siglingu og gæti að öllu óbreyttu sett stærstu kjarasamningana á vinnumarkaði í uppnám í haust. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, bregst við nýjustu tíðindum af hagkerfinu í Spursmálum. Það gerir hún ásamt Þórði Pálssyni, forstöðumanni fjárfestinga hjá Sjóvá. Þá ræða þau stöðuna í pólitíkinni, Hilmar Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Mosfellings og oddvitaframbjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, og Ólöf Skaftadóttir, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins. Í þættinum ræðir Stefán Einar einnig við Bjarna Helgason, fréttastjóra íþrótta á Morgunblaðinu en hann fylgir landsliðinu okkar eftir í Danmörku þar sem það mætir heimamönnum í æsispennandi leik í kvöld.

#107. - Baráttan um völdin hafin

54 min

Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varformaður hans, takast á um formannsstólinn í flokknum. Flokksþing fram undan Þann 15. febrúar næstkomandi verður nýr formaður kjörinn á flokksþingi Framsóknarflokksins en Sigurður Ingi Jóhannsson, sem verið hefur formaður frá því í október 2016 gaf það út fyrr í vetur að hann hygðist söðla um og láta af embætti. Hann tók við formennskunni á róstursömum tíma í íslenskum stjórnmálum þegar hann sigraði sitjandi formann flokksins, Sigmund Davíð Gunnlaugsson með ríflega 52% atkvæða. Í kjölfarið klauf Sigmundur Davíð flokkinn og stofnaði Miðflokkinn. En hvert hyggjast þær Ingibjörg og Lilja taka Framsóknarflokkinn, fái þær umboð til þess að leiða hann næstu árin? Svara við þeirri spurningu og mörgum öðrum verður leitað í lifandi og hispurslausri umræðu á vettvangi Spursmála.

#106. - Harðir slagir framundan

2 hr 5 min

Vegna spennandi leiks Íslands og Króatíu í handknattleik karla, sem fram fer í Malmö klukkan 14:30 í dag hefur útsendingartími Spursmála verið fluttur til klukkan 12:00 í dag.Gestir þáttarins eru margir og áhugaverðir. Fyrst mæta til leiks þau Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og uppistandarinn og vínspekúlantinn Dóri DNA. Fara þau yfir fréttir vikunnar. Þá ræðir Stefán Einar við oddvitaframbjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, þá Ásgeir Elvar Garðarsson, Unnar Stefán Sigurðsson og Vilhjálm Árnason. Prófkjör flokksins fer fram laugardaginn 31. janúar næstkomandi.Í lok þáttar er rætt við Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðing í utanríkis- og varnarmálum. Þar verður meðal annars fjallað um mögulegar aðildarviðræður Íslands að ESB, bægslagang Donalds Trump gagnvart Grænlandi og sitthvað fleira.

#105. - Vændiskaup, verðbólguskot og einkunnagjöf í skólum

1 hr 27 min

Mikil fréttavika er að baki sem náði hápunkti í morgun þegar Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar sagði af sér vegna gamalla ódrýgðra synda. Til að ræða fréttir vikunnar á vettvangi Spursmála þennan föstudaginn mæta þau Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við þrjá oddvitaframbjóðendur Viðreisnar í Reykjavík um áherslur þeirra, komist þau til valda að afloknum kosningum 16. maí næstkomandi. Þar fara þau Róbert Ragnarsson, Aðalsteinn Leifsson og Björg Magnúsdóttir.

Bókaspjall - Íslandsklukkan með Loga Einars

1 hr 7 min

Íslandsklukka Halldórs Laxness er eitt helsta stórvirki nóbelskáldsins. Bókin var tekin fyrir í desembermánuði í bókaklúbbnum og í kjölfarið settist Logi Einarsson menntamálaráðherra niður ásamt Stefáni Einari til að ræða efni og inntak bókarinnar í víðu samhengi. Ekki síst hvaða skírskotun hún hefur inn í nútímann.

See all 164 episodes

–

0 ratings from members

5
4
3
2
1

Rate this podcast

Log in to rate and review the shows you listen to.

No reviews yet — be the first member to rate "Spursmál".

This podcast, its content and its artwork are not owned by, affiliated with, or endorsed by Castquire.

Keep listening

Discover more podcasts like this.

Up next

  1. Nothing queued. Use + Queue on any episode to line it up.

0:00 0:00